Ekki að heilla

Nei, alls ekki. Þannig að ég hef fært mig aftur og núna er slóðin:

www.kristing.bloggar.is

Get trúað að það sé komið til að vera.


Ævintýri enn gerast

Var að koma brunandi heim á rauða kagganum, syngjandi með Queen í botni. Merkilegt að einu leyti, þ.e. ég var að keyra ein í fyrsta sinn á þjóðvegum landsins. Gaman líka að geta þess að frá afleggjaranum hjá Ýdölum og hingað heim að hlaði spilast akkúrat einn Queen diskur.

En ég eyddi semsagt helginni í sveitinni. Ekkert nema gott við það; fékk næði til að læra, fékk að sjá lömb fæðast, klæddist bláum vinnugalla og borðaði góðan mat. Ég verð nú líka að viðurkenna að þrátt fyrir að ég sé hálfgerður imbalabbi þarna og kunni ekki alveg sveitamálið þá líður mér rosalega vel þarna í náttúrunni.


Það er merkilegt hvað náttúran gerir mann væmnan. Held að ég hafi komist einu skrefi nær að skilja ættjarðarljóð Jónasar Hallgrímssonar á vissum tímapunktum. T.d. fór ég út að hlaupa laugardagsmorguninn allan Reykjahverfisafleggjarann. Maður var einn í náttúrinni, fuglarnir sungu og veðrið var gott. Ofurvæmið, en svona var þetta.
Í gærkvöldi vorum við svo á vakt í fjárhúsunum. Vorum bæði úfin, í bláum vinnugöllum að skoða kindur. Fengum okkur svo smá göngutúr uppá heiði, gengum meðfram ánni og horfðum á sólsetrið. Lögðum okkur svo í hlöðunni og tuggðum strá.

Já, þetta hljómar einsog versta og væmnasta ástarsaga... en svona er sveitin. Þar gerast ævintýrin... ;)

Harkan sex

Veðrið er búið að vera frábært undanfarið. Er líka búin að njóta þess í botn. Var t.d. núna að koma úr sundi (og fékk smá sundbolafar), mánudags- og þriðjudagskvöldið fórum við út í fótbolta og í gærkvöldi skelltum við Jón og Eydís okkur á kaffihús og hittum svo Sunnu og Mæju og fórum á rúntinn. Brynjuís fylgir líka alltaf góðviðrisdögum sem og pils og sætir skór.

En nú verð ég að reyna að hemja mig. Prófin fara að skella á og ég verða að einbeita mér að lærdómi þrátt fyrir að sólin togi í mann. Stefnan verður sett á Amtsbókasafnið eftir skóla alveg fram að prófum, maður verður jú að gera þetta almennilega.

Sjálfspíning eða ekki, svona er bara lífið..


Nýjar myndir

Er búin að vera að henda inn myndum. Komnar myndir af fermingunni Jóns Inga, setti líka inn e-jar af jólunum og var svo að enda við að græja albúm frá Amazon..

Mæli með Amazon myndunum. Yfir 100 myndir og margar mjög flottar. Hreinlega mitt himnaríki !

p.s. myndin í hausnum á blogginu er btw af morgunsólinni í Amazon, tekin úr hengirúminu sem ég svaf í um borð í bátnum undir berum himni.


UMF Selfoss ?

Það var frí í stærðfræði þannig ég dreif mig í ræktina. Fékk aftur í bakið, þetta er ekki sniðugt. Ætli þetta sé kannski skortur á bakæfingum ?

Er reyndar búin að vera í nokkurri lægð frá ræktinni alveg síðan á páskum. Letin þar hefur farið alveg með mann. Ekki það að maður hreyfi sig ekki 4-6x í viku, heldur er ekki tekið eins vel á því og var. Það er meiri fjölbreytni núna (sund, útihlaup, göngur o.fl) en krafturinn minni. Næst eflaust enginn árangur með því.

Svo er spurning hvernig sumarið verður. Ekki nennir maður að hanga inni í góða veðrinu og síst í þessari ræktarholu sem þeir eiga þarna á Selfossi. Ég hef verið að gæla við þá hugmynd að fara aftur í boltann, þó ekki væri nema til að hafa gaman og koma mér í form. Væri bara bónus ef maður gæti fengið að spila með liðinu. Sá í gærkvöldi að allt touch er farið.. :(

En ætla að drífa mig í sturtu og svo í skólann aftur, það er langdregnasta eftirhádegið í dag. 5 tímar; eðlisfræði, double vistfræði og svo double eðlisfræðitilraun..


Lystisemdir lífsins

Mistery-þoka, fótbolti og greifapizza í góðra vina hópi gerði kvöldið gott.
Yfirgáfum völlinn flest nokkuð slösuð eftir grófar tæklingar og klaufaskap. Audrey með asnalegt hné, Sunna með ónýtan úlnlið, Jón bara ónýtur eftir straujununa frá mér, ég með laskað nef, Siggi aumur eftir bareflin og held að Oddný hafi bara verið þreytt.. ;)

Það verður gott að kúra í hálsakoti í kvöld. Gott gott.


Dans á rósum

Það er svo margt sem maður spyr sjálfan sig að þessa dagana. Stundum veit ég ekki hvort ég á að vera reið, áhyggjufull eða alveg sama. Sjaldnast er mér alveg sama, ég læt mig flest varða. En áhyggjufull eða reið.. það er svona í beggja bland.

Mér finnst ótrúlegt hvað fólk getur farið illa með sjálft sig. Á mörgu sviði. Hvort sem það er á sviði offitu, metnaðarleysis, drykkju, sóðaskapar eða bara vonleysis þá trúi ég varla hvað fólk getur borið mikla óvirðingu fyrir sjálfum sér.

Í flestum tilfellum getum við ekki hjálpað fólki sem ekki vill fá hjálp. Ég á erfitt að sætta mig við það, ég vil hjálpa svo allir geta verið glaðir og ánægðir. En ég fæ því slett framan í mig öðru hverju að sá heimur sem ég vil svo heitt lifa í er ekki til.

Ég fer ekki af þeirri skoðun minni að allt verður einsog við viljum að það verði. Við ákveðum hvernig við bregðumst við aðstæðum og það er okkar val hvernig líf okkar verður. Margir kunna ekki að bregðast við óvæntum aðstæðum og missa tökin. Til eru ótalmörg dæmi um það. En ef fólk er nógu meðvitað um sig sjálft þá er hægt að gera gott úr öllum hlutum.
Ekkert er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott.

Ég er kannski einföld manneskja sem skil ekki hið flókna líf til hlítar. Ég skil ekki af hverju fólk gerir sér þetta. Ég skil ekki af hverju fólk getur ekki glaðst yfir litlu hlutunum. Ég skil ekki einu sinni af hverju fólk nennir aldrei með mér á gönguskíði !!

En vonandi mun sá dagur koma a lokum að ég get skilið þetta.. en kannski á sama tímapunkti mun ég átta mig almennilga á að lífið er ekki bara endalaus dans á rósum.

Ég mun samt dansa á rósum þangað til því það veitir mér gleði og ánægju.. og það er það sem ég vil.


Nýjungagjörn

Ég er Íslendingur. Ég er nýjungagjörn.

Þess vegna er ég komin hingað með hugleiðingar, vangaveltur og allt hitt sem mér dettur í hug að rita um.

Vonum að þetta virki vel...

...og góðviðrisdaginn !


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband